Í námskeiðinu ígrunda nemendur eigin sýn á stærðfræðikennslu með hliðsjón af rannsóknum á stærðfræðinámi og kennslu. Helstu kenningar og rannsóknarniðurstöður um stærðfræðinám eru kynntar, og áhersla er lögð á að tengja fræðin við stærðfræðikennslu þátttakenda. Ólíkar nálganir á stærðfræðikennslu eru kynntar og fræðilegar forsendur þeirra.
Hæfniviðmið:
Að loknu námskeiði á nemandi að geta:
- gert grein fyrir helstu nálgunum á stærðfræðikennslu og gagnrýni á hefðbundna stærðfræðikennslu
- gert grein fyrir nokkrum helstu togstreitum sem einkenna starf stærðfræðikennara og nokkrum helstu fræðihugtökum á sviði stærðfræðimenntunar
- gert grein fyrir eigin ígrunduðu sýn á stærðfræðikennslu
- greint og nýtt möguleika stærðfræðiverkefna til að kalla fram merkingarbært nám í stærðfræði
- hannað krefjandi verkefni sem nemendur geta lært mikilvæga stærðfræði af, rökstutt það með vísan til kenninga og rannsókna, og nýtt í kennslu
- Kennari: Ingólfur Gíslason
- Kennari: Ingólfur Gíslason