Kynntar verða fræðilegar kenningar og módel sem hafa það að markmiði að stuðla að áhrifamikilli fræðslu fyrir alls konar safngesti í tengslum við fjölbreytt viðfangsefni safna. Hugað verður m.a. að möguleikum safnfræðslu, hlutverkum safnkennara, sjónarmiðum safngesta, rými, frásögn, margmiðlun, gagnvirkni o. fl.
Þetta er fjarkennslunámskeið sem skiptist í þrjá hluta. Í hverjum hluta (sem er að meðaltali fjórar vikur) eru stuttar kynningar frá kennara um námsefnið. Þrjár staðlotur eru skipulagðar yfir önnina, þar sem nemendur hitta og heyra frá sérfræðingum og starfsfólki ólíkra safna ásamt því að vinna að tillögum að fræðsluverkefni í samstarfi við Borgarsögusafn Reykjavíkur. Staðloturnar eru á eftirfarandi dögum: fös. 27. sept.; fös. 25. okt. og fös. 15. nóv. Áætluð viðvera í staðlotum er frá kl. 10 til 16.- Lærar: Valdimar Tryggvi Hafstein
- Lærar: Sigurjón B Hafsteinsson
- Lærar: Alma Dís Kristinsdóttir
- Lærar: Guðrún Dröfn Whitehead